Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu. Athugasemdir þeirra birtast strax og ekki þarf að staðfesta uppgefið netfang.

Gestir:

Suður Ameríka

Sæll Bragi! Var að googla Suður Ameríku vegna þess að ég er að velta því fyrir mér að ferðast þangað. Þetta er allt á frumstigi en í leit minni rakst ég á þetta blogg frá þér og las allt sem þú skrifar um ferðina. Var einmitt búin að sjá síðuna bakpokinn.com sem þú nefnir einhversstaðar og fá fullt af upplýsingum frá bloggferðalöngum þar. Gaman að sjá að þú sért svona mikill ferðalangur. Bið að heilsa þér og frúnni, Þurý Gunnars sem var að vinna hjá þér hjá Hafnarbakka og Hirði

thuridur Gunnarsdottir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 6. des. 2009

Helena Mjöll Jóhannsdóttir

Gleðilegt ár frændi!

Það er aldeilis fjör hjá ykkur! Nei, það næst ekki alltaf á toppinn, en allt hitt er líka þess virði. Knús Helena;)

Helena Mjöll Jóhannsdóttir, mið. 28. jan. 2009

Bragi Ragnarsson

Kristskirkja

Takk Kristín mín, Við verðum aðeins að sjá hvernig heilsan og tíminn verður en það var mjög gaman í fyrra og stefnum að því að mæta. Bestu kveðjur

Bragi Ragnarsson, mið. 12. nóv. 2008

Tónleikar

Blessuð og sæl. Það er boðið til tónleika í Kristkirkju n.k. sunnudag 16. nóv kl. 16:00 getið þið mætt? Hlökkum til sjá sjá ykkur. Starfsfólk SA

Kristín Jónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 12. nóv. 2008

Hæ hó!

Það er frábært að fá að fylgjast með ferðum ykkar. Ég hefði viljað vera í ykkar sporum og hitta tiltekinn leiðsögumann í Buenos Aires....dansa Tangó og borða nautasteikur! Kærar kveðjur! Eyja

Þórey Hannesdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 4. nóv. 2008

EIMSKIP sendir kveðju!

Sæll Bragi minn og þið öll. Vildu nú bara senda ykkur kveðju frá nokkrum vinum í Gufuskipafélaginu. Við fylgjumst með ferðum ykkar af á. Klaka-kreppu-knús í hitann og sólina. SBD BTM GYL STS HPV

Sigrún Baldursdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 28. okt. 2008

Sæll frændi...

Allt gott héðan að frétta. Lífið gengur sinn vana gang og er ekki ástæða til að þakka það. Þá er allt í gúdí eins og skemmtileg frænka mín orðar það alltaf. Til hamingju með daginn hennar mömmu þinnar í gær 10. sept. Knús Helena;)

Helena Mjöll Jóhannsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 11. sept. 2008

Helena Mjöll Jóhannsdóttir

Sæll frændi......

.... Ja hérna, þetta gengur náttúrulega ekki að við skulum ekki vita af bloggi hvors annars.(ég er reyndar engin rosa bloggari en samt...)En það verður snarlega bætt úr því kæri frændi. Kær kveðja frá frænku;)

Helena Mjöll Jóhannsdóttir, mán. 21. apr. 2008

Tak for sidst

Sæll og takk fyrir síðast. Það er ekki að því að spyrja hvað hún dóttir mín er myndarleg húsmóðir (!). Athyglisvert þetta sem þú skrifar um að mest sé huglægt varðandi aldur. Sammála þessu.Kv. Magga

Margrét S. Pálsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 21. mars 2008

Kveðja frá Hirti

Það er gaman að lesa pistlana frá þér en hér kemur smá staka í sama stíl og var hjá þér Vaskur ertu vinur minn virðist ætíð mestur smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur

Hjörtur Guðbjartsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 16. feb. 2008

Gústukveðjur.

Fékk uppgefið bloggið hjá Hirti, mun fylgjast með áfram. Sendi koss og knús með hugskeyti. Gústa.

Ágústa (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 12. feb. 2008

Vinarkveðja

Sendi ykkur hjónum bestu kveðjur og takk fyrir síðast, gaman að fylgjast með blogginu þínu Bragi, njótið vel. kv. Svana

Svanhildur Geirarðsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 12. feb. 2008

Sendi með þér góðar kveðjur

Sendi með þér góðar kveðjur í þessa útlegð minn kæri eiginmaður. Bestu kveðjur Jónína

Jónína Gissurardóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 21. jan. 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband