Machu Piccu - hápunkturinn

Vorum að koma til byggða, stíggenglarnir fjórir, þreyttir, skítugir og rosalega góðir með sig eftir erfiða og ánægjulega fjögra daga tjaldferð.  Höfum ekki tíma fyrir mikið report núna en munum gera þessu betri skil við fyrsta tækifæri.  Látum því eftirfarandi vísur duga núna, sem urðu til í fjöllunum:

 Alveg klárt, ég engu lýg,
um það vitna tröllin,
að við gengum Inkastíg
upp og niður fjöllin.

Erum komin aftur heil
enginn limur snúinn,
örkuðum við Inkatrail,
orðum dáldið lúin.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að heyra að Inkatrailið hafi gengið svona vel, allir biðja að heilsa!

Kv. Biddý, Kolli, Tinna og bumbubúinn

Biddý (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband